24júlí

Hví er lífið ei Disney...

Ég vildi óska að lífið væri Disney mynd. Þá þyrfti ekki annað en að detta inn í söng og vont skap yrði að engu og hægt væri að spóla fram og til baka og spila á margskonar hraða.

Mér finnst heimurinn breytast allt of hratt, ég vildi að hann gæti verið kyrr um stund, bara svo hægt sé að njóta stunda sem fljúga hjá allt of hratt, ég er ekki tilbúin fyrir lífið alveg strax, svo að það væri fínt ef það gæti hægt aðeins á sér bara svo ég nái að hugsa.

Ég er í einstaklega EMÓ skaoi akkurat núna!
24. júlí 2008 klukkan 01:48
Arna Arinbjarnardóttir
3 athugasemdir
11júlí

Hey ég er orðin stúdent og það alveg fyrir mánuði síðan eða meira, er bara alveg hætt að blogga og fannst soldið kjánalegt að koma hér inn og sjá ennþá bloggfærslu um hræðslu mína um að geta ekki útskrifast og fleira bull!!
En já nú bý ég ekki lengur á Freyjugötunni með Olgu, ég er bara flutt á Norðurstíg og Olga er farin til Danmerkur að finna ástina... Talandi um ástina hún er ekki til!! ÓGEÐSLEGA BITUR!
Sumarið er búið að vera ljúft, ég er að vinna sem leiðbeinandi í unglingavinunni og er að fílaða í botn, og ég er komin með lit í framan og á hendurnar (takið eftir því að ég segist vera komin með lit, liturinn er rauður ekki brúnn) og svo bara ætla ég að flýja land í október, fara þangað sem grasið er grænna, bjórinn er ódýrari og sígarettur ekki eins illa liðnar og samt sem áður eru Íslendingar þar á hverju götuhorni.. Ég er að sjálfsögðu að tala um Úrbakistan!!

Ég hata peninga!

Bless!
11. júlí 2008 klukkan 16:59
Arna Arinbjarnardóttir
Engin athugasemd
18mars

Niðurdrepandi hugsanir og stress!!!

Ég hata stress.. Það virðist alltaf vilja leynast upp að mér á mest pirrandi tímum og aðalega alltaf þegar ég ætla mér að reyna að sofna...

Því nær sem dregur að hinni langþráðu útskrift því stressaðri verð ég, það styttir tímann í að ég þarf að taka alvarlegar ákvarðanir eins og hvað vil ég gera næst hvað vil ég gera við líf mitt??? Og satt best að segja hef ég ekki hugmynd, ekki eina einustu.. Ég er ekki eins heppin og sumir sem sífelt fá nýjar og nýjar hugmyndir um hvað skal gera Ó NEI ég er gersamlega 100% clueless um hvað ég vil að framtíðin beri í skaut sér!!

Allt þetta stress gæti líka tengst þeirri nýuppgötvuðu reynslu minni á að það þýðir ekkert að plana fram í tímann þar sem það fokkast hvort eð er upp. Ekkert helst allt breytist hraðar en maður á von á.. Hvernig í andskotanum á maður þá að getað ákveðið framtíð sýna. Satt best að segja á mínum myrkustu dögum æsku minnar hélt ég að ég myndi aldrei lifa þann dag að útskrifast, aldrei þurfa að lifa við þann tíma að virkilega ákveða hvað skal gera... Svo bara búmm 6 ár af menntaskóla á enda komin innan tíðar og ég er alveg jafn clueless og fyrri daginn.. Eða nei meira clueless, ég var náttúrulega 100% viss um að verða leikkona alla mína barnæsku.

Ég bíð bara eftir því að einn daginn fæ ég bara svona BÚMMMM!!! ég veit hvað ég vil gera!!! En eins og ég veit manna best þá gerist það ekki nema með því að maður geri eitthvað í því sjálfur.

Maður getur víst ekki verið ung og áhyggjulaus að eilífu!!
18. mars 2008 klukkan 02:36
Arna Arinbjarnardóttir
2 athugasemdir
14febrúar

Það getur verið ótrúlega yfirþyrmandi hversu langt ímyndunaraflið og hugsun manns getur farið með mann. Á einni sekúndu get ég farið um allan heiminn, hitt fullt af fólki og uppgötvað að tilgangur mannkyns á jörðu er enginn, nema kannski jú að filla uppí holu leiðindisins.
Ég veit ekki hversu oft ég hef legið upp í rúmi og ætlað mér að sofna, en í staðin endað í endalausum pælingum um líf á öðrum plánetum eða í samræðum við manneskju sem mig hefur svo lengi langað að segja eitthvað við.

Þetta er svo magnað, það er heill heimur þarna inni. Heimur sem gefur manni kleift að gera hvað sem er, bara svo lengi sem maður hefur hæfileikan til að sökkva sér inní hugann á sér.
Ég öfunda þær manneskjur sem geta týnst þarna inni og þá týnst inní eigin heimi og hafa sinn eigin heim.

Minn hugur endar alltaf í samræðum sem mig langar svo að hafa, og hvað ég myndi segja í vissum aðstæðum. Og að sjálfsögðu er ég alltaf fullkomin með öll svör á hreinu í þeim heimi.

Annað sem gerir reikandi hug svo skemmtilegan er að hann meikar ekkert sens, og þegar manneskja ætlar að koma honum niðrí setningar endar það pretty much eins og eftirfarandi texti.

Svona er hugurinn...
14. febrúar 2008 klukkan 00:39
Arna Arinbjarnardóttir
Engin athugasemd
01janúar

Hahahahahaha... Ég hef komist af því að líf mitt er ein stór kaldhæðni, ef það er til eitthvað sem heitir Guð þá er hann þarna uppi og hæðist af mér..
Ég geri aldrei neitt slæmt, ég lifi lífinu eins og ég vil hafa það og er ekkert annað en góð við þá sem mér þykir væntum.. Samt sem áður hefur lífið þá tilhneigingu til að gera mér ástarmál mín sem erfiðust!! Og ég veit að enginn sá sem les þetta veit um hvað ég er að tala en það eina sem ég hef um það að segja er HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!!
Haltu áfram með kaldhæðnina, þú líf ert það eina sem veist allra best að ég þarfnast þess :P

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!!!!

Ég elska ykkur öll!!!!!
01. janúar 2008 klukkan 07:19
Arna Arinbjarnardóttir
1 athugasemd
03desember

Halló...
ég veit að þið hafið öll 2 vellt því fyrir ykkur hvort að ég sé dáin... NEI svo er ekki... ég fékk bara ógeð af bloggi og varð háð Myspace svo fékk ég leið á því og varð háð Facebook... Svo var ég vakandi kl tíu mínútur í fjögur aðfaranótt mánudagsins 3. des og ákvað að skrifa á bloggið mitt í þeirri von að ég myndi vera alveg hrikalega leiðinleg og sofna yfir bulli í sjálfri mér... So far not working...

hmm.. um daginn þá var ég ótrúlega mikið búin að plana að tala um Across the Univers (eða around the univers man ekki alveg, alla veganna lína sem sögð er í Bítla lagi) eeen þega ég byrjaði að skrifa um það koma bara bull út og ég náði ekki neinu samhengi í því sem ég skrifaði og ákvað því að sleppa því bara og vonast til þess að Olga segi eitthvað skemmtilegt um hana á sínu bloggi...

Hei hafið þið einvherntímann þolað ekki manneskju sem er geðveikt skemmtileg.. það er ótrúlega spes tilfinning, sko að virkilega ekki þola manneskju, sem er síðan ótrúlega skemmtileg og góð manneskja á sama tíma!!! MJÖG ÁHUGAVERT!!!

Jólin koma bráðum... HAffi kemur heim eftir 5 daga!!! JIBBÍ!!!

Já og ég er komin með nýja vinnu sem dyravörður á Q bar!!! svaka gaman.. sérstaklega eftir að Kristín ákvað að byrja að vinna þar líka!!! :D:D

ókey mér hefur tekist að svæfa mig og vonandi ykkur hin 2 líka

see yahh suckers!!


03. desember 2007 klukkan 04:01
Arna Arinbjarnardóttir
1 athugasemd
17ágúst

hang up the chick habit 
hang it up, daddy,
or you'll be alone in a quick
hang up the chick habit
hang it up, daddy,
or you'll never get another fix

i'm telling you it's not a trick
pay attention, don't be thick
or you're liable to get licked

you're gonna see the reason why
when they're spitting in your eye
they'll be spitting in your eye

hang up the chick habit
hang it up, daddy,
a girl's not a tonic or a pill
hang up the chick habit
hang it up, daddy,
you're just jonesing for a spill

oh, how your bubble's gonna burst
when you meet another nurse
she'll be driving in a hearse

you're gonna need a heap of glue
when they all catch up with you
and they cut you up in two

now your ears are ringing
the birds have stopped their singing
everything is turning grey

no candy in your till
no cutie left to thrill
you're alone on a tuesday

hang up the chick habit
hang it up, daddy,
or you'll be alone in a quick
hang up the chick habit
hang it up, daddy,
or you'll never get another fix

i'm telling you it's not a trick
pay attention, don't be thick
or you're liable to get licked

you're gonna see the reason why
when they're spitting in your eye
they'll be spitting in your eye
17. ágúst 2007 klukkan 12:44
Arna Arinbjarnardóttir
1 athugasemd
29júlí

Ég held það sé kominn tími fyrir nýja færslu...
Nú er ég löngu komin heim frá Dk og það var ógó gaman í drullunni og bleytunni á Hróa :) Það er nú komið mitt sumar og mér hefur ekki enn tekist að fá neinn lit þrátt fyrir óendanlega gott veður á Íslandi þetta sumarið. Þessu má kenna vinnunni minni um sem sér til þess að láta mig rotna inn á kaffihúsi á meðan sólin leikur við alla hina krakkana. Einnig sér vinnan mín til þess að þá daga sem ég er í fríi sé alltaf rigning! :o

Núnú hvað hefur svo á daga mína drifið?? hmm... (hugsar spekingslega) já auðvitað, mér hefur hlotnast hjól, við móðir mín eigum það reyndar saman sem er bara allt í lagi. Ég elska að hjóla! Ég er meira segja búin að hjóla í og úr vinnunni nokkrum sinnum, gæti reyndar alveg verið duglegri við það að hjóla í vinnuna en svona er letin, eða meira svefnburkan. Vá talandi um að vera svefnburka við þessi skrifuðu orð er ég við það að sofna.

En ég verð að vinna núna... hahahaha djók ég geri ekki svoleiðis!
alla veganna ég er farin að finna mér eitthvað verkefni sem meikar ekkert sens, en í því fellst að vera ekki inn á kaffihúsi :P
29. júlí 2007 klukkan 12:22
Arna Arinbjarnardóttir
2 athugasemdir
30júní

Jæja það fer bara að líða að Hróaskeldu.. Við, Olga og Elfa förum í loftið um fjögur leitið á morgun og ég er að deyja úr spenningi... Ég á reyndar eftir að pakka og þvo svo að það er smá stress í gangi, en miðað við hvað það eina sem ég hef talað um undanfarna viku er farangurinn á Hróa þá ætti ég að vera komin með góða hugmynd um hvað verður í bakpokanum :P Þetta á eftir að vera æðisleg ferð!! Allir sem ég elska mest verð á staðnum (fyrir utan mömmu mína) hljómsveitir verða að spila og bjórinn er ótakmarkaður :D
Ég hlakka líka svo til að hitta hana Ingu mína á morgun þar sem hún er búin að vera í Króatíu og Bosniu síðasliðnar tvær vikur.. Og ég get sagt ykkur það að það hefur ekki verið auðvelt... Ég manneskjan sem aldrei ætlaði í samband var actually að missa mig úr söknuði seinustu tvær vikur... en söknuðurinn er á enda :D

HRÓASKELDA HERE WE COME!!! :D:D:D:D
30. júní 2007 klukkan 13:30
Arna Arinbjarnardóttir
1 athugasemd
26júní

Hei ég var að komast að því rétt í þessu að það er til fíll út í heimi sem heitir Arna :o



sjáiði ekki hvað við erum ógeðslega líkar??

Image Hosting by PictureTrail.com

Einnig komst ég að því að ef ég googla nafnið mitt koma ótrúlega margar mismunandi myndir af þessari konu...



Hér má einnig sjá mikil líkindi á ferð...

Image Hosting by PictureTrail.com

Þið gætuð spurt ykkur sjálf núna, ætli Örnu hafi leiðst þegar henni datt þetta blogg í hug.. og svarið er einfalt: já mjög mikið!!!
26. júní 2007 klukkan 01:56
Arna Arinbjarnardóttir
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Könnun

Elskaru mig??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins